Kara Rugs

Kara Rugs Kara Rugs
~ R u g s & T e x t i l ~
➖Turkish
➖Hand made
➖Machine made
➖Vintage

🤎 Loksins komin aftur!Vinsæla hringmottan, Merino Ø240 cm, er nú aftur komin á lager í tveimur fallegum litum:✨ Natural ...
26/09/2026

🤎 Loksins komin aftur!

Vinsæla hringmottan, Merino Ø240 cm, er nú aftur komin á lager í tveimur fallegum litum:
✨ Natural Beige
✨ Oat

Hringmotta mýkir rýmið á einstakan hátt og hentar fullkomlega undir hringborð, í stofuna, svefnherbergið eða þar sem þú vilt skapa hlýlegt og fágað yfirbragð.

Merino mottan er handofin úr 100% nýsjálenskri ull, tvíhliða og einstaklega endingargóð. Náttúruleg áferð hennar og hlýir litir gera hana að tímalausri viðbót við hvaða heimili sem er.

Ef þú hefur beðið eftir þessari stærð er rétti tíminn núna – Ø240 cm er aftur fáanleg bæði í Natural Beige og Oat. 🤍

Stundum þarf ekki meira en fallega púða til að gefa stofunni, svefnherberginu eða uppáhalds hægindastólnum nýtt líf. Með...
24/09/2026

Stundum þarf ekki meira en fallega púða til að gefa stofunni, svefnherberginu eða uppáhalds hægindastólnum nýtt líf. Með Classic Velvet púðunum frá Classic Collection geturðu auðveldlega leikið þér með liti, áferð og stemningu.

Mjúkt bómullarflauel, tímalaus hönnun og litir sem passa jafnt í hlý haustheimili sem björt rými allt árið um kring. Veldu einn lit fyrir rólegt yfirbragð eða blandaðu saman nokkrum tónum til að skapa persónulegan og hlýlegan stíl. Púðarnir eru fáanlegir í mörgum fallegum litum og eru handgerðir úr 100% bómullarflaueli.

Hvaða litur er í uppáhaldi hjá þér? 🤍

Dolce Vita frá Mille Notti er sængurver úr einstaklega mjúku og silkimjúku satínofnu bómullarefni (500 TC), sem umlykur ...
23/09/2026

Dolce Vita frá Mille Notti er sængurver úr einstaklega mjúku og silkimjúku satínofnu bómullarefni (500 TC), sem umlykur þig með þægindum og gefur svefnherberginu fágað, tímalaust yfirbragð. Fallegar tvöfaldar línur meðfram hliðunum setja punktinn yfir i-ið og gera hönnunina klassíska og glæsilega. Framleitt í Portúgal og OEKO-TEX® vottað.

Hvít rúmföt eru alltaf klassísk – þau skapa ró, birtu og þá einstöku tilfinningu að gista á fallegu boutique-hóteli, á hverri einustu nóttu. 🤍

🤎 Náttúruleg ull. Tímalaus hönnun. Heimili sem endist.Tvær af okkar uppáhalds ullarmottum ,Merino Oat og Verbier Beige M...
20/09/2026

🤎 Náttúruleg ull. Tímalaus hönnun. Heimili sem endist.

Tvær af okkar uppáhalds ullarmottum ,Merino Oat og Verbier Beige Melange – eiga það sameiginlegt að skapa hlýlegt og fágað yfirbragð án þess að taka athyglina frá rýminu.

✨ Merino Oat er mjúk, handofin og hægt að snúa á báðar hliðar. Hlýi oat-liturinn gefur rýminu mýkt og ró.

✨ Verbier Beige Melange er kraftmeiri handofin ullarmotta í fallegri blöndu af beige-, gráum- og náttúru tónum. Hægt að snúa einnig á báðar hliðar og náttúruleg fita ullarinnar gerir hana einstaklega endingargóða og auðvelda í viðhaldi.

Ullarmotta er fjárfesting sem þú nýtur á hverjum degi – hlý undir fótum, falleg allt árið um kring og verður aðeins fallegri með tímanum.

Komdu við í sýningarrýminu okkar í Askalind 4 eða sendu okkur skilaboð – við aðstoðum þig við að finna mottuna sem hentar þínu heimili. 🤍

🕯️ Stemningin byrjar með ilminum.Það er eitthvað einstakt við að kveikja á kerti þegar haustkvöldin verða dimmari. Ljúf ...
19/09/2026

🕯️ Stemningin byrjar með ilminum.

Það er eitthvað einstakt við að kveikja á kerti þegar haustkvöldin verða dimmari. Ljúf birta, hlý teppi, góður drykkur og ilmur sem fyllir heimilið af notalegri stemningu. 🤎

Sweet To***co ilmkertið frá Mille Notti er gert úr lífrænu sojavaxi og ilmar af fágaðri blöndu af sætum og muskukenndum tónum sem skapa hlýlegt og róandi andrúmsloft. Kertið brennur í um 40 klukkustundir og fallega beige glerið gerir það jafnframt að fallegum hluta af innréttingunni.

Fullkomið fyrir róleg kvöld heima – eða sem falleg gjöf fyrir einhvern sem á skilið smá dekrið. ✨

🍂 Haustið er komið… og það er tíminn til að gera heimilið extra notalegt.Það er fátt betra en að kúra í sófanum með góða...
17/09/2026

🍂 Haustið er komið… og það er tíminn til að gera heimilið extra notalegt.

Það er fátt betra en að kúra í sófanum með góðan bolla, bók eða uppáhaldsþáttinn vafin inn í mjúkt ullarteppi. 🤎

Tile Beige er fallegt jacquard-ofið ullarteppi úr 100% nýsjálenskri ull með tímalausu grafísku mynstri í hlýjum beige- og náttúru tónum. Það hefur fallegar tvær mismunandi hliðar, einstaklega mjúkt og hlýtt, fullkomið yfir sófann, hægindastólinn eða rúmið.

Lítil breyting sem skiptir miklu máli – fallegur textíll gerir heimilið hlýrra, notalegra og býður manni að slaka á.

✨ Hlýja, mýkt og tímalaus hönnun. ✨Merino Natural Beige er ein af okkar vinsælustu ullarmottum, handofin úr náttúrulegri...
15/09/2026

✨ Hlýja, mýkt og tímalaus hönnun. ✨

Merino Natural Beige er ein af okkar vinsælustu ullarmottum, handofin úr náttúrulegri, ólitaðri NZ ull sem gefur rýminu hlýlegt og fágað yfirbragð. Hægt að snúa á báðar vegu, einstaklega slitsterk og ullin hrindir náttúrulega frá sér óhreinindum, sem gerir hana jafn fallega og hún er praktísk.

🤎 Stærðin 250 × 350 cm er vanalega sérpöntunarstærð, en nú eigum við eina mottu á lager til afhendingar strax.

Þessi stærð hentar einstaklega vel í rúmgóðar stofur, undir stór borðstofuborð eða þar sem þú vilt skapa fallega heild.

Komdu við í sýningarrýminu okkar í Askalind 4 eða sendu okkur skilaboð ef þú vilt fá nánari upplýsingar. 🤍

Unglingaherbergið er meira en bara staður til að sofa - rými til að læra, slaka á, hitta vini og vera maður sjálfur. ✨Fa...
13/09/2026

Unglingaherbergið er meira en bara staður til að sofa - rými til að læra, slaka á, hitta vini og vera maður sjálfur. ✨

Falleg motta getur breytt stemningunni á augabragði. Hún mýkir rýmið, gefur því hlýleika, dregur úr bergmáli og bindur saman húsgögn og liti. Það er þessi litli aukahlutur sem gerir herbergið persónulegra og notalegra.

Veldu mottu sem endurspeglar stílinn, hvort sem það eru rólegir jarðlitir, mjúk áferð eða meira áberandi mynstur. Það skiptir máli að herbergið sé staður sem unglingurinn nýtur þess að vera í.

Stundum þarf ekki stórar breytingar til að gefa heimilinu alveg nýtt líf. 🤎Fallegur textíll hefur ótrúleg áhrif á rými. ...
12/09/2026

Stundum þarf ekki stórar breytingar til að gefa heimilinu alveg nýtt líf. 🤎

Fallegur textíll hefur ótrúleg áhrif á rými. Púðar, gardínur, mottur og rúmföt mýkja umhverfið, bæta hlýleika og skapa þá notalegu stemningu sem gerir hús að heimili.

Það er einmitt þess vegna sem við elskum að vinna með vandaðan textíl – því hann snýst ekki bara um útlit heldur líka um hvernig heimilið lætur okkur líða.

Púðaverið er fallegt dæmi um hvernig einn vel valinn púði getur sett punktinn yfir i-ið. Hlýir tónar, falleg áferð og tímalaus hönnun sem passar jafnt í sófann, hægindastólinn eða á rúmið.

Láttu svefnherbergið blómstra. 🌿🌷Honeysuckle & Tulip sængurverið frá Mille Notti er innblásið af hinu sígilda blómamynst...
11/09/2026

Láttu svefnherbergið blómstra. 🌿🌷

Honeysuckle & Tulip sængurverið frá Mille Notti er innblásið af hinu sígilda blómamynstri sem William Morris hannaði árið 1876. Rómantískt mynstur, tímalaus hönnun og silkimjúkt satin úr 100% fínkembdri bómull gera þetta að rúmfötum sem eru jafn falleg og þau eru þægileg.

✨ 400 þráða satin (400 TC)
✨ OEKO-TEX® Standard 100 vottað
✨ Framleitt í Portúgal
✨ Mjúk áferð og lúxustilfinning sem endist

Þetta eru rúmföt fyrir þá sem vilja vakna á hverjum morgni í smá lúxus og færa svefnherberginu fágað og klassískt yfirbragð.

Address

Askalind 4
Kópavogur
201

Opening Hours

Wednesday 15:00 - 18:00
Thursday 15:00 - 18:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kara Rugs posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kara Rugs:

Shortcuts

Share