Tanja Dís - Innanhússarkitekt

Tanja Dís - Innanhússarkitekt BA Innanhússarkitektúr - Innanhússhönnun - Innanhússtílisti. Rýmishönnun fyrir heimili og fyrirtæki, með vellíðan og notagildi í fyrirrúmi 🌱

40 fm íbúð í Hafnarfirði - Vetur 2026 🌱 Hlýlegir mildir litir og náttúruleg efni í fyrirrúmi. - Allir veggir og loft mál...
10/03/2026

40 fm íbúð í Hafnarfirði - Vetur 2026 🌱 Hlýlegir mildir litir og náttúruleg efni í fyrirrúmi.

- Allir veggir og loft málað. Veggirnir í alrýminu er málaðir í Angora Blanket frá Sérefni. Skápar og rúmgrind (gegnheil fura) grunnað og málað í Monte Sacro frá Sérefni.

- Skipt um allar framhliðar og höldur á eldhúsinnréttingu.

- Endurnýjað innbyggð LED loftljós og bætt við skrautlýsingu/loft og veggljósi. Komið fyrir innstungu.

- Nýjar myrkvunar rúllugardínur í alla glugga sem og hörlíkis gardínur í neðri hluta stærri glugga og filmur í x2 smærri glugga. Allir gluggar pússaðir og málaðir að innanverðu.

- Sérsmíðaður innbyggður fataskápur.

- Alhliða stílísering á íbúð (val á húsgögnum, smámunum, uppröðun í rými og skipulag).

Hér má sjá myndir teknar eftir breytingar og fyrir breytingar 🤗

Verið hjartanlega velkomin á fyrsta fræðslufund Kyrrð Interiors á vegum ADHD samtakanna, í beinu streymi miðvikudaginn 2...
13/01/2026

Verið hjartanlega velkomin á fyrsta fræðslufund Kyrrð Interiors á vegum ADHD samtakanna, í beinu streymi miðvikudaginn 21.janúar kl.20 🤗🌱

"Skynvæn innanhússhönnun – Minna áreiti, meiri einbeiting og vellíðan. Hvernig getur innanhússumhverfið unnið með okkur, ekki á móti?

Tanja Dís Magnúsdóttir, eigandi Kyrrð Interiors, fjallar um hvernig vel ígrundað rýmisskipulag, lýsing, hljóðvist, lita- og efnisval geta dregið úr áreiti og aukið einbeitingu, vellíðan og framleiðni, sérstaklega hjá einstaklingum með skynnæmni.

Við nýtum allt að 90% af lífinu innandyra og þriðjung þess í vinnunni. Gerðu rýmið að styrk, ekki hindrun.

Fræðslufundur sem nýtist öllum sem vilja betra vinnu- og daglegt umhverfi."

👉
https://facebook.com/events/s/skynv%C3%A6n-innanhusshonnun-minna-/1179552030427475/

Gleðilegt nýtt ár!Kyrrð Interiors óskar þér og þínum gleðilegs nýs árs, með djúpu þakklæti fyrir stórkostlega gefandi tæ...
01/01/2026

Gleðilegt nýtt ár!

Kyrrð Interiors óskar þér og þínum gleðilegs nýs árs, með djúpu þakklæti fyrir stórkostlega gefandi tækifæri, hönnunarverkefni og samveru á liðnu ári. Hlakka til áframhaldandi- og nýrra spennandi verkefna á árinu 🤗🌱

Vefsíða Kyrrð Interiors er nú formlega komin í loftið, hvet því alla áhugasama til að heimsækja síðuna ✨️

Vefsíða 👉 https://www.kyrrdinteriors.com/

Hönnunarverkefni DK-2 - Hönnunarhugmyndir að borðstofu og stofu fyrir danska fjölskyldu. Hannað og kynnt í Danmörku í ok...
29/11/2025

Hönnunarverkefni DK-2 - Hönnunarhugmyndir að borðstofu og stofu fyrir danska fjölskyldu. Hannað og kynnt í Danmörku í október 2025 🤗🌱

Hér má sjá hluta af hönnunarkynningunni:

Hönnunarverkefni DK-1 - Hönnunarhugmyndir að borðstofu og stofu fyrir ungt danskt par. Hannað og kynnt í Danmörku í októ...
23/11/2025

Hönnunarverkefni DK-1 - Hönnunarhugmyndir að borðstofu og stofu fyrir ungt danskt par. Hannað og kynnt í Danmörku í október 2025 🤗🌱

Hér má sjá hluta af hönnunarkynningunni:

17/11/2025

Andlitslyfting á mötuneyti Hafnarfjarðarbæjar 2025 🌱

Alrými og hliðarrými tekið í gegn. Áhersla á þægindi og góða nýtingu rýmisins fyrir starfsmenn og gesti í mat, létta hittinga og fundi 🤗

Hlýlegt og velkomandi andrúmsloft skapað með hagstæðum lausnum: Slípað og lakkað gólf/borðplötu á innréttingu, málað alla veggi, hljóðvistar plötur, ál á innréttingu, ný húsgögn, mynda-uppröðun, gardínur, ljúf tónlist og skrautmunir, sem voru m.a. fundnir á nytjamarkaði ✨️Ferlið:

Maí: Hugmyndir, hittingar og heildarhönnun.

Júní: Samskipti við verktaka, verslanir og tengiliði, pantanir.

Júlí: Framkvæmdir (rými lokað í nokkrar vikur), afhending, samsetning, uppröðun og stílísering.

Ágúst: Opnun.

Falleg ummæli fyrir hönnun á mötuneyti í Hafnarfirði 🤗 Gaman að sjá glitta í rýmið á Rúv fyrr í haust 👇
16/11/2025

Falleg ummæli fyrir hönnun á mötuneyti í Hafnarfirði 🤗 Gaman að sjá glitta í rýmið á Rúv fyrr í haust 👇

Andlitslyfting á mötuneyti Hafnarfjarðarbæjar 2025 🌱 Alrými og hliðarrými tekið í gegn. Áhersla á þægindi og góða nýting...
16/11/2025

Andlitslyfting á mötuneyti Hafnarfjarðarbæjar 2025 🌱

Alrými og hliðarrými tekið í gegn. Áhersla á þægindi og góða nýtingu rýmisins fyrir starfsmenn og gesti í mat, létta hittinga og fundi 🤗

Hlýlegt og velkomandi andrúmsloft skapað með hagstæðum lausnum: Slípað og lakkað gólf/borðplötu á innréttingu, málað alla veggi, hljóðvistar plötur, ál á innréttingu, ný húsgögn, mynda-uppröðun, gardínur, ljúf tónlist og skrautmunir, sem voru m.a. fundnir á nytjamarkaði ✨️

Hér má sjá eftir/fyrir myndir af rýminu.

Skrifstofurými nr. 01 - Myllan-Ora - 2025 🌱Eftir og fyrir myndir af einka-skrifstofu nr. 01 fyrir höfuðstöðvar Myllan-Or...
24/07/2025

Skrifstofurými nr. 01 - Myllan-Ora - 2025 🌱

Eftir og fyrir myndir af einka-skrifstofu nr. 01 fyrir höfuðstöðvar Myllan-Ora. Áhersla var lögð á hlýlega liti og mismunandi áferðir til að gefa rýminu ákveðna dýpt og léttleika. Rýmisskipulagið býður gesti velkomna í sérstakt setusvæði en tekur einnig vel á móti starfsmanninum sem fær nú að njóta útsýnisins við skrifborð frá Hirzlunni, í trufflu-gráum lit með svörtum kannti.

Rennihurða-skáparnir frá Hirzlunni eru með Innbyggðar ál höldur og opnar hillur ofan á, sem styður vel við léttleika rýmisins, með auðveldu aðgengi og þæginlegu skipulagi í hversdeginum.

Affogato liturinn frá Sérefni er á þremur veggjum. Útveggurinn er málaður í dekkri grá-brúnum tón (F6.05.50) til að draga fram einstakt útsýni skrifstofunnar 🤗

Önnur húsgögn og skrautmunir: Ilva, Dorma, Purkhús, Ikea, Epal, Garðheimar.

Nokkrar ljósmyndir af útfærðum hönnunarlausnum Kyrrð Interiors, sem húseigendur (íbúð í Reykjavík) sóttu innblástur í og...
09/06/2025

Nokkrar ljósmyndir af útfærðum hönnunarlausnum Kyrrð Interiors, sem húseigendur (íbúð í Reykjavík) sóttu innblástur í og gerðu að sínu á hlýlegan og hugmyndaríkan máta 🤗🌱

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tanja Dís - Innanhússarkitekt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Tanja Dís - Innanhússarkitekt:

Share