Litla föndurmamman

  • Home
  • Litla föndurmamman

Litla föndurmamman Síðan mín þar sem ég sýni hvað ég er að dúlla mér við. Föndur, endurnýting, skipulag,

22/06/2026

Ég veit að það verður kannski erfitt að heyra þetta en ég ætla að taka smá sumarfrí. Ég lofa að koma aftur í lok júli en þangað til ætla ég að slaka á, föndra (auðvitað) og njóta mín að vera með fjölskyldunni minni.
Ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur í næsta mánuði með fullt af nýjum hugmyndum.

Mannstu eftir skurðarbrettinu sem að mistókst hjá mér fyrir nokkrum vikum? Ég vildi ekki gefast upp og ákvað að reyna kr...
19/06/2026

Mannstu eftir skurðarbrettinu sem að mistókst hjá mér fyrir nokkrum vikum? Ég vildi ekki gefast upp og ákvað að reyna krot-aðferðina. Ég lærði þetta á Youtube fyrir nokkrum árum og ég hef notað þetta oftar en að þú getur ímyndað þér.
Þetta er ótrúlega einfalt, mjög svipað og að nota kalki pappír.
Þú byrjar á því að skrifa textan eða teikna myndina á blað. Svo krassar þú yfir bakhliðina með blýanti, snýrð blaðinu aftur við þannig að framhliðin snýi að þér, lætur blaðið á hlutinn og ferð yfir línurnar með penna eða blýanti. Þannig færist myndinn eða textinn yfir á hlutinn og þú getur farið yfir með penna (ég elska að nota paint markers fyrir svona).
Og voila, ég bjargaði föndrinu.

Smá viðvörun áður en að þú heldur lengra, ég virkilega elska hvernig þetta föndur kom út!Ég fann þetta spjald í .... fyr...
19/06/2026

Smá viðvörun áður en að þú heldur lengra, ég virkilega elska hvernig þetta föndur kom út!
Ég fann þetta spjald í .... fyrirgefðu, ég man ekki í hvaða notað-nýtt búð hérna á Akureyri en ég vissi strax að ég gæti gert það miklu flottara og ég vissi hvernig ég vildi breyta því.
Ég málaði það með uppáhalds grænu málingunni minni. Það er takmarkað hvað litla Cricut vélinn mínn getur skorið út stóra mynd/texta í einu en með því að skipta myndinni niður að þá tókst mér að skera út nógu stóran texta og lauf.
Svo var bara að færa allt yfir á spjaldið og fara að plana.

Eitt af því sem að ég elska við Cricut vélina mína (ekki misskilja mig, ég elska allt við þessa litlu elsku) er að persó...
05/06/2026

Eitt af því sem að ég elska við Cricut vélina mína (ekki misskilja mig, ég elska allt við þessa litlu elsku) er að persónugera hluti.
Dóttir mín var á háskólakynningu, kom heim með þennan poka og ég varð að persónugera hann, gera hann meira fyrir mig. Og veistu, ég DÝRKA pokann núna.

Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur, föndur þarf ekki að kosta mikið, taka langan tíma eða vera dýrt. Föndur vikun...
29/05/2026

Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur, föndur þarf ekki að kosta mikið, taka langan tíma eða vera dýrt. Föndur vikunnar er fullkomið dæmi um þetta. Ég fann þessar kúlur og þetta litla viðarskilti í Hertex, 100 kr stk. Ég málaði skiltið, tók kúlurnar í sundur og raðaði þeim upp á nýtt, bjó til þennan litla tassel (skúf) og festi hann öðrum megin við kúlurnar og viðarskiltið hinum megin.

Þetta tók mig ca. 20 mín. og ég gæti ekki verið ánægðari með þetta.

Ef að ég ætti að velja eitthvað eitt orð sem að ég lifi eftir að þá væri það dreymdu. Það er eldgamalt lag og ein línan ...
25/05/2026

Ef að ég ætti að velja eitthvað eitt orð sem að ég lifi eftir að þá væri það dreymdu. Það er eldgamalt lag og ein línan í því segir "If you don't have a dream, how are you gona make a dream come true?" og veistu, þetta er svo satt.
Anyway, um daginn var ég í einni af uppáhalds notað-nýtt búðinni minni, Norðurhjálp, og sá þar box með litlum hlutum til að setja á hálsmen eða armbönd og hvert men hafði orð. Ég hugsaði strax, ef að þeir eiga dreymdu að þá kaupi ég það, og veistu, þeir áttu dreymdu (dream) og auðvitað þurfti það að fara heim með mér.
Ég er svo oft búin að segja það en æskudraumurinn minn rættist í febrúar, og ég er svo þakklát. Þannig að dreymdu, vonaðu, skrifaðu drauminn niður og stefndu á að láta drauminn rætast.

Mannstu eftir tónleikunum sem að ég fór á í lok febrúar? Á tónleikunum féll fullt af pappírsdóti (confetti) úr loftinu o...
22/05/2026

Mannstu eftir tónleikunum sem að ég fór á í lok febrúar? Á tónleikunum féll fullt af pappírsdóti (confetti) úr loftinu og ég "bjargaði" aðeins af því til minninga.
Svo fann ég þennan þrívíddar ramma, setti mynd af mér í rammann og pappírsskrautið og litla seríu í botninn á rammanum.
Svo skar ég út "þegar draumar rætast" og dagsetninguna á tónleikunum út og setti á glerið sjálft.
Ég er svo skotin í því hvernig þetta kom út að þú gætir ekki trúað því!

Ég var búin að segja þér að ég kaupi aðallega notuð föt. Ég er ... jarðbundnari en flestir aðrir (lesist, mjög lágvaxin)...
15/05/2026

Ég var búin að segja þér að ég kaupi aðallega notuð föt. Ég er ... jarðbundnari en flestir aðrir (lesist, mjög lágvaxin) þannig að ég þarf oftast að breyta fötunum til að þau passi. Oftast er ég ánægð með útkomuna en ef ekki að þá er þetta hvort er notað og ódýrt sem að ég hef eyðilagt.
Mig langaði að sýna þér hvað ég fann í síðstu 2 skiptin sem að ég hef farið að versla. Ég þurfti að breytta buxunum en skyrtan og vestið, það eina sem að ég þurfti að gera var að stinga í þvottavélina.
Finnst þér þetta ekki sætt dress? Og það besta er að ég fékk þetta mjög ódýrt, þetta er er endurnýting og eftir að ég tók fram saumavélina, passar á mig.

Föndur, eins og lífið, gengur ekki alltaf upp. Ég fann þetta vel elskaða skurðarbretti í Hertex held ég og þegar ég sá þ...
08/05/2026

Föndur, eins og lífið, gengur ekki alltaf upp. Ég fann þetta vel elskaða skurðarbretti í Hertex held ég og þegar ég sá þessa setningu á töflu í vinnunni minni "Lífið er of stutt fyrir vont kaffi og of langt fyrir ekkert kaffi" að þá vissi ég að það yrði fullkomið á skurðarbrettið. En það gekk ekki. Ég veit ekki af hverju, kannski eru einhverjar olíur á brettinu en þó að ég notaði venjulegan eða vinyl eða vinyl sem að er strayjaður á (eins og á föt) að þá festist hann bara ekki við brettið. Kannski mun ég mála brettið eða pússa það upp en ég vildi það ekki, ég vildi halda í notaða útlitið, en ég skal sýna þér seinna hvernig ég finn út úr þessu.

Það sem ég ætla að sýna þér í dag er ekki endilega föndur, en endurnýting. En fyrst, pínu bakgrunnsupplýsingar. Ég er lí...
01/05/2026

Það sem ég ætla að sýna þér í dag er ekki endilega föndur, en endurnýting.
En fyrst, pínu bakgrunnsupplýsingar. Ég er lítil, ég er á hæð á við 8 ára lágvaxið barn, en þar sem það sem það er ekki gert ráð fyrir að þegar maður er svona lágvaxinn að maður sé með rass, brjóst og mjaðmir... við skulum bara segja að versla föt er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég sem sagt kaupi aðallega fötin mín í Hertex, og fleiri þannig búðum og breyti þeim.
En að endurnýtingu vikunnar. Ég átti þennan kjól sem að ég held mikið uppá, elska litinn og sniðið, en ég var að mála (hefðir þú getað trúað því að ég var að föndra?) og sletti málingu á kjólinn sem að festist í honum. En í staðinn fyrir að láta kjólinn hverfa að þá ákvað ég að skreyta hann meira með firðildum (fela málingasletturnar) og uppáhalds orðinu mínu "dreymdu". Ég er svo ánægð með að hafa tekist að bjarga kjólnum.

Address


Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Litla föndurmamman posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed Interior Service?

Share