Prjónum og skreytum veifur

Prjónum og skreytum veifur Tívolí fagnar Þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní 2026. Fylgist með hér og takið þátt í undirbúningnum! 🎉🇮🇸

Lengsta fánalengja Tivoli, veifur síðustu ára, mun setja hátíðarblæ á daginn. Í ár einbeitum við okkur að því að skreyta innganginn. Prjónaðu þjóðhátíðarveifu fyrir Tívolí!
Í fyrsta sinn í sögu danska skemmtigarðsins Tívolí verður haldið upp á Þjóðhátíðardag Íslendinga. Það verður því mikið húllumhæ í garðinum föstudaginn 17. júní og hefur Tívolí haft samband og vill fá aðstoð íslenskra (og danskr

a) handprjónara til að skreyta garðinn.
Í tilefni þess höfum við unnið að hugmynd um handprjónaðar veifur úr íslenskum lopa. Hugmyndin kemur upphaflega frá hönnuðinum Védísi Jónsdóttur, sem skreytti jólatréð í Heiðmörk í fyrra með veifum úr ónothæfum lopapeysum. Við ætlum að taka veifurnar skrefinu lengra og ásamt því að nýta ónothæfar lopapeysur ætlum við að prjóna veifur úr rauðum, hvítum og bláum lopa. Halla Benediktsdóttir hefur skrifað uppskrift að veifu fyrir þá sem vilja hjálpa til, mikilvægt er að taka mið af íslenska fánanum þegar hugað er til litavals. Við vonum að sem flestir vilji leggja hönd á plóg og hjálpa okkur að skreyta Tivolí með handprjóni í íslenskum fánalitum. Markmiðið er að prjóna heilan kílómeter af veifum og verða fánarnir áfram nýttir á ári hverju og alltaf hægt að bæta við. Ætli við náum að slá heimsmet um lengsta fána heims eftir 10 ár?
Á sjálfan þjóðhátíðardaginn getur þú svo skundað í Tívolí að sjá veifuna þína og njóta hinnar íslensku skemmtidagskrár sem verður í boði. Einnig verður ennþá meira handprjón í boði á sjálfum deginum – fylgist með bæði hér í hópnum og á heimasíðu Tívolí varðandi nánari dagskrá; https://www.tivoli.dk/.../tivolifejrerislandsnationaldag2022
Um 17. júní frá Tívolí;
Islands Nationaldag er en del af eventserien Tivoli Fejrer, hvor vi markerer og fejrer forskellige mærkedage. Nogle events i den serie er gamle og kendte, som eksempelvis sankthansaften, og nogle havde vi debut på sidste år, som eksempelvis 4th of July og Bastilledagen. Fælles for alle events i serien Tivoli Fejrer er, at vi gerne vil gøre Tivoli til stedet, vores gæster kan komme hen, når de ønsker at fejre en mærkedag. Islands Nationaldag er et nyt event i serien, og det at det falder på en fredag er en kæmpe fordel. Vi kan i sammenspil med Havefest og Fredagsrock skabe et stort event, hvor vi markerer og tilbyder islandske traditioner, fejrer den islandske kultur og giver islændinge og øvrige gæster mulighed for at fejre dagen med alt hvad det indebærer; traditioner, mad og musik. Da eventet ligger på en fredag, har vi musik fra om eftermiddagen, og mange af Tivolis scener vil blive aktiveret og eventet rundes af med et stort fredagsrocknavn kl. 22.00. Vi forventer rigtig mange gæster i Haven den dag, og det er den perfekte mulighed for at få skabt en fast tradition for denne fejring af Islands Nationaldag i Tivoli.

Það var mjög vel mætt í Jónshús í gær og veifuframleiðslan gekk eins og í sögu. Hvað ætli veifurnar séu orðnar margar?Sk...
22/04/2026

Það var mjög vel mætt í Jónshús í gær og veifuframleiðslan gekk eins og í sögu.
Hvað ætli veifurnar séu orðnar margar?
Skrifaðu svarið þitt í kommenti hér fyrir neðan.
Jónshús

Taktu þátt í að prjóna veifur sem munu skreyta aðalinnganginn í Tivoli á sjálfan þjóðhátíðardaginn. 🇮🇸🎡❤️🎡🇮🇸Við gerum að...
15/04/2026

Taktu þátt í að prjóna veifur sem munu skreyta aðalinnganginn í Tivoli á sjálfan þjóðhátíðardaginn.
🇮🇸🎡❤️🎡🇮🇸

Við gerum aðeins stærri vefur en áður. Uppskrift, garn og prjónar á staðnum.

Tilvalið fyrir byrjendur sem og vana.

Hlökkum til þess að sjá þig í Jónshúsi, þriðjudaginn 21.apríl kl. 18:30. 🇮🇸🎡🇮🇸

Tivoli er aldrei fallegra en á 17. júní! 🇮🇸🎡🇮🇸Lýkt og seinustu ár þá skreytum við Tivoli með veifum á 17. júní. Í ár ein...
07/04/2026

Tivoli er aldrei fallegra en á 17. júní! 🇮🇸🎡🇮🇸
Lýkt og seinustu ár þá skreytum við Tivoli með veifum á 17. júní. Í ár einbeitum við okkur að því að skreyta innganginn í Tivoli með stærri veifum. Tilvalið verkefni fyrir vana sem og byrjendur og þá sem langar að læra að prjóna. Vertu með! 🇮🇸🧶

Fylgstu med á “hatidarprjon” á Instagram og “Prjónum og skreytum veifur” á Facebook þar sem við munum auglýsa viðburði þar sem við hittumst og prjónum og annað tengt 17. júní í Tivoli.

25/08/2025

PAKHUSSTRIK 2025 Få masser af inspiration og rig mulighed for at nørde igennem, når vi afholder vores årlige strikkefestival Pakhusstrik. Fredag 12....

Hlökkum til að sjá Tivoli fallega veifuskreytt á morgun! 🇮🇸🎡❤️Dagskráin er skemmtileg og þú getur meðal annars verið með...
16/06/2025

Hlökkum til að sjá Tivoli fallega veifuskreytt á morgun! 🇮🇸🎡❤️
Dagskráin er skemmtileg og þú getur meðal annars verið með í að þæfa Ísland. Katrín Tinna eigandi Garnkiosken stendur fyrir því skemmtilega verkefni.
Hlökkum til þess að sjá þig!❤️

12/06/2025

Veifur seinustu ára mættu í Jónshús í gær þar sem Halla og fleiri frábærar konur, gerðu þær tilbúnar fyrir 17. júní.
Það þarf að mæla lengjur, stytta sumar og lengja aðrar, og sauma nýju veifurnar á band svo allt passi að planinu frá Tivoli. Eitt er víst að Tivoli hefur aldrei verið glæsilegra en það verður á 17. júní í ár. ❤️

Þúsund þakkir fyrir hjálpina við að gera veifurnar Tivoliklárar. Hlökkum til þess að sjá þig í Tivoli á 17. júní 🎡🇮🇸❤️

🧑‍🎨🧶Veifur í hendur lítilla listamanna átti sannarlega vel við um helgina. Við áttum notalega stund saman í Jónshúsi, pr...
24/03/2025

🧑‍🎨🧶Veifur í hendur lítilla listamanna átti sannarlega vel við um helgina. Við áttum notalega stund saman í Jónshúsi, prjónuðum og skreyttum veifur og fengum okkur vöfflur inn á milli. Takk fyrir samveruna öll sem mættu ❤️

Næsti hittingur verður í Tivoli þann 5. maí, endilega setjið kross í dagatalið, nánari upplýsingar þegar nær dregur. 🧶🇮🇸🎡

Í ár bjóðum við börnum að taka þátt í hátíðarprjónsverkefninu fyrir 17. júní og skreyta veifur sem munu fá heiðurssæti í Tívolí á sjálfan þjóðhátíðardaginn. 🇮🇸🎡🧶

Jónshús Halla Benediktsdóttir

Opið hús í Jónshúsi, fyrir börn á öllum aldri, 6-99 ára! Komdu og prjónaðu og skreyttu veifur með okkur sunnudaginn 23. ...
05/03/2025

Opið hús í Jónshúsi, fyrir börn á öllum aldri, 6-99 ára! Komdu og prjónaðu og skreyttu veifur með okkur sunnudaginn 23. mars frá kl. 10:30 - 14:00. 🇮🇸🧶🎡

Í ár bjóðum við börnum líka að taka þátt í Hátíðarprjónsverkefninu fyrir 17. Júní og skreyta veifur sem munu fá heiðurssæti í Tívolí á sjálfan 17. júní! 🥰

✨ Allt efni á staðnum
✨ Boðið verður upp á vöfflur
✨ Tækifæri til að læra eða rifja upp prjónataktana, nú eða finna sinn innri veifuskreytingarlistarmann.

Hvort sem þú ert byrjandi eða reyndur prjónari, þá er þetta tilvalið tækifæri til að hittast, prjóna og eiga huggulega stund saman og aðstoða við hátíðarprjónsverkefni ársins.
📍 Jónshús
📅 23. mars, opið hús frá 10:30 - 14:00

Endilega taktu þátt og hjálpaðu okkur að fylla Tívolí af íslenskri gleði og litadýrð! ❤️💙🤍

Hlökkum til þess að sjá ykkur í kvöld í Jónshús!🇮🇸🧶❤️
28/01/2025

Hlökkum til þess að sjá ykkur í kvöld í Jónshús!🇮🇸🧶❤️

30/10/2024

Þá höfum við gengið frá seinustu endunum á “Prjónum til góðs” verkefni ársins og afhentum 86 handprjónuð sjónvarpssokkapör í stóru Rauðakrossbúðina á Fælledvej 4. Þar verða þau til sölu og rennur allur ágóði til Rauða krossins. ❤️

Kærar þakkir til allra sem tóku þátt í verkefninu í ár, erum strax farnar að hugsa um hvað verður þemað á næsta ári. 🇮🇸🧶🇮🇸

Megastore Røde Kors Hovedstaden
Jónshús
Halla Benediktsdóttir

Adresse

Øster Voldgade 12
Copenhagen
1350

Telefon

+4523281944

Internet side

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Prjónum og skreytum veifur sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Kontakt Virksomheden

Send en besked til Prjónum og skreytum veifur:

Del