Býflugan og blómið

Býflugan og blómið Býflugan og blómið er blóma- og gjafavöruverslun staðsett á Dalsbraut 1 Akureyri, sími 461 5444 www.byflugan.is

Fallegar haustplöntur t.d. á pallinn, í garðinn og á leiði💐Blómvendir og afskorin blóm í úrvali🤗Pottaplöntur blómstrandi...
27/09/2026

Fallegar haustplöntur t.d. á pallinn, í garðinn og á leiði💐Blómvendir og afskorin blóm í úrvali🤗Pottaplöntur blómstrandi og eða iðagrænar.🪴Og svo má ekki gleyma haustlaukunum🌷Opið sunnudaga 11-16 🐝🌼

NÚ ER HAUSTLAUKATÍMINN 🌹🌹 🌹Liljutúlípanar (Lily-flowered tulips) eru einstaklega glæsilegir og tignarlegir flokkur túlíp...
25/09/2026

NÚ ER HAUSTLAUKATÍMINN 🌹🌹
🌹Liljutúlípanar (Lily-flowered tulips) eru einstaklega glæsilegir og tignarlegir flokkur túlípana sem einkennast af grönnum, bikarlaga blómum með ydduðum krónublöðum sem sveigjast örlítið út á við, líkt og á liljum.
Þeir blómstra yfirleitt seint á vorin (maí til júní, fer eftir árferði).
Flestar tegundir verða um 40–60 cm háar og eru á sterkum stönglum sem þola vel vind og rigningu.🌹🌹

🌹🌹Tromp túlípanar eru flokkur túlípana sem einkennist af einföldum, skálarlaga blómum. Geta orðið um 35 til 60 cm á hæð.
Eru mið- til síðblómstrandi 🌹🌹

🌹🌹Single early tulip (einfaldur snemmblómstrandi túlípani) er flokkur túlípana sem blómstrar snemma á vorin, venjulega í apríl.
Stór, bikarlaga blóm sem opnast breitt í sólskini.
Stuttir og sterkbyggðir stönglar (um 20–40 cm á hæð) sem þola vel vind og veður. Henta mjög vel í potta, ker eða fremst í blómabeð🌹
VIÐ ERUM HÉR TIL AÐ AÐSTOÐA 🐝🌼
https://byflugan.is/product-category/arstidarvara/haustlaukar/

🌹🌹Fosteriana túlípanar (einnig nefndir keisaratúlípanar eða eldtúlipanar) eru flokkur harðgerðra, fjölærra og snemmblóms...
25/09/2026

🌹🌹Fosteriana túlípanar (einnig nefndir keisaratúlípanar eða eldtúlipanar) eru flokkur harðgerðra, fjölærra og snemmblómstrandi túlípana. Þeir eru sérstaklega vinsælir í norrænum görðum þar sem þeir koma áreiðanlega upp aftur ár eftir ár.
🌹🌹Greigii túlípanar eru lágvaxnIr og harðgerðIr deplatúlípanar sem einkennast af breiðum laufblöðum með dökkfjólubláum eða brúnum rákum og dílum
VIÐ ERUM HÉR TIL AÐ AÐSTOÐA 🐝🌼
https://byflugan.is/product-category/arstidarvara/haustlaukar/

NÚ ER TÍMINN 🌷🐦Páfagaukatúlípanar Parrot tulips eru áberandi og sérstæð trefils- eða fjaðurskreytt afbrigði af túlípana....
25/09/2026

NÚ ER TÍMINN 🌷🐦Páfagaukatúlípanar Parrot tulips eru áberandi og sérstæð trefils- eða fjaðurskreytt afbrigði af túlípana. Þeir draga nafn sitt af krumpuðum, fjaðurlaga og bylgjuðum krónublöðum sem minna um margt á litríkan páfagauk í flugi.
Blómin eru gjarnan mjög stór og koma í ævintýralegum litasamsetningum með rákum, logalaga mynstrum eða grænum tónum inn á milli.

🌷🌷Fylltir túlípanar (oft kallaðir double tulips eða peony tulips) eru dásamleg afbrigði af túlipönum sem einkennast af mörgum lögum af krónublöðum, sem gerir það að verkum að þeir líkjast bóndarósum (peonies) fremur en venjulegum túlípönum.

Hér eru helstu flokkar og einkenni fylltra túlípanablóma:
🌷 Snemmblómstrandi fylltir túlípanar (Double Early)
Þessi afbrigði blómstra snemma á vorin Þeir eru með sterka og frekar stutta stilka, sem gerir það að verkum að þeir standa vel þrátt fyrir þung blómin.

🌷Síðblómstrandi fylltir túlípanar (Double Late / Peony Flowered)
Þessir blómgast síðast og eru oft með enn stærri og fylltri blómhöfuð. Þeir geta orðið mjög stórir og glæsilegir í vösum eða beðum, en þurfa stundum stuðning ef það er mikill vindur eða rigning utandyra.

ERUM HÉR TIL AÐSTOÐA 🐝🌼
https://byflugan.is/product-category/arstidarvara/haustlaukar/

Kistuskreyting í haustlitunum🥀
23/09/2026

Kistuskreyting í haustlitunum🥀

Nú er haustlaukatíminn og páskaliljur eru endalaus gleðigjafi🤗Þetta árið erum með aðeins öðruvísi páskaliljulauka en þes...
22/09/2026

Nú er haustlaukatíminn og páskaliljur eru endalaus gleðigjafi🤗Þetta árið erum með aðeins öðruvísi páskaliljulauka en þessa venjulegu og erum svo ánægð með þá🥰 Páskaliljulaukar fjölga sér og þeir gera það yfirleitt mjög vel með tímanum. Með hliðarlaukum sem er algengast. Móðurlaukurinn myndar smáa hliðarlauka (klær) út frá sér neðanjarðar. Með árunum stækka þeir og verða að sjálfstæðum blómlaukum. Þetta veldur því að páskaliljur mynda oft þétta brúska eða þyrpingar eftir nokkur ár á sama stað. Ef þú vilt fjölga páskaliljum í garðinum þínum er best að skipta þeim upp.Bíddu þar til blöðin hafa gisnað og gulað alveg á sumrin (venjulega í júlí eða ágúst). Grafðu laukana varlega upp úr jörðinni. Aðskildu litlu hliðarlaukana varlega frá stóra móðurlauknum. Endurplantaðu laukunum strax á nýjan stað í um 10–15 cm dýpt. svo auðvelt 🐝🌼Niður núna og upp í vor 🐝🌼byflugan.is

Nú er Haustlaukatíminn 👏👏 Balkansnotra (Anemónur blanda, pinkstar) er lágvaxin og harðgerð laukplanta (hnýðisplanta) sem...
21/09/2026

Nú er Haustlaukatíminn 👏👏 Balkansnotra (Anemónur blanda, pinkstar) er lágvaxin og harðgerð laukplanta (hnýðisplanta) sem blómstrar mjög snemma á vorin (apríl til maí). Hún hentar sérstaklega vel sem þekjugróður undir trjám, í steinhæðir eða fremst í blómabeð. Hnýðin á balkansnotru eru oftast eins og skorpnar, litlar steinvölur. Látið hnýðin liggja í volgu vatni í 12–24 klukkustundir fyrir gróðursetningu. Þetta „vekur“ laukinn, hann sýgur í sig vökva og flýtir mikið fyrir rótarvexti. OG svo er það Músafælulaukurinn góði (Keisarakróna) sem er nauðsyn í tjaldvagninn, húsbílinn, hjólhýsið, sumarbústaðinn og alla þá staði þar sem mýs vilja gera sig heimakomnar.... Náttúruleg fæla sem virkar vel 💯🐝🌼byflugan.is

Útfararskreytingar 🥀  byflugan.is 🐝🌼
20/09/2026

Útfararskreytingar 🥀 byflugan.is 🐝🌼

Nú er rétti tíminn til að setja niður HVÍTLAUK🧄Setja skal hvert rif niður í jarðveginn sem nemur um þrisvar sinnum hæð þ...
20/09/2026

Nú er rétti tíminn til að setja niður HVÍTLAUK🧄
Setja skal hvert rif niður í jarðveginn sem nemur um þrisvar sinnum hæð þess og breiðari endi rifsins skal vísa niður. Bilið milli rifanna þarf að vera nógu mikið fyrir nýjan lauk að vaxa á milli. Auðvelt er að rækta hvítlauk í pottum úti á verönd eða á pallinum🧄🧄 🐝🌼byflugan.is

Haustlyng og haustlaukar, afskorin blóm, ilmkerti,reykelsi og kandís🤩 verður ekki betra í haustblíðunni sem er hér á Aku...
17/09/2026

Haustlyng og haustlaukar, afskorin blóm, ilmkerti,reykelsi og kandís🤩 verður ekki betra í haustblíðunni sem er hér á Akureyri í dag 🤗 byflugan.is 🐝🌼

Address

Dalsbraut 1
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 10:00 - 18:00
Tuesday 10:00 - 18:00
Wednesday 10:00 - 18:00
Thursday 10:00 - 18:00
Friday 10:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 11:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Býflugan og blómið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Býflugan og blómið:

Shortcuts

Share