Klakabönd - Gluggaskraut

Klakabönd - Gluggaskraut Skrautmunir hannaðir af Svönu Jóseps. Unnið úr málmi & pólýhúðað

Klakaböndin eru hugarsmíð Svönu Jóseps, en hún hefur um árabil fengist við listsköpun og unnið verk í margskonar efnivið. Þekktust er Svana fyrir blómaskreytingar sínar og brúðarvendi en hún hefur einnig fengist við leirlist, vefnað, sauma og málun jafnt sem skreytingar og hönnun af ýmsu tagi. Undanfarin ár hefur Svana sótt í nýstárlegri vinnubrögð og tekið tæknina í sína þjónustu til að koma huga

rsmíðum sínum í framkvæmd. Klakaböndin og ýmis önnur form sem orðið hafa til í huga Svönu eru unnin og gerð tölvutæk í AutoCad, lesin inn í málmskurðarvélar og prentuð út í þeim stærðum og formum sem listamaðurinn velur. Þegar útskurði er lokið eru verkin sprautulökkuð og úr verður listmunur sem framkalla má í hvaða stærð sem er og aðferðin býður einnig upp á leik með liti og lögun. Fyrir nokkru síðan sá tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir litla útgáfu af Klakaböndum Svönu og sótti þaðan innblástur í tónverk sem heitir In The Light Of Air. Tónverkið var flutt í Hörpu á Listahátíð 2014 og þar voru Klakaböndin í hlutverki slagverks ásamt öðrum hefðbundnari hljóðfærum. Anna hefur flutt In The Light of Air víða um heim og Klakaböndin því orðin ansi víðförul nú þegar. Klakaböndin hafa vaxið og dafnað frá fyrsta degi og hér gefst ykkur kostur á að skoða þau sem og fjöldan allan af öðrum fallegum formum sem fara vel í hvaða glugga sem er.

Jólaleg jól í Víðilundi í dag 🎄
05/12/2024

Jólaleg jól í Víðilundi í dag 🎄

Þessi er einstök og verður líklega ekki endurtekin 🥰
20/11/2024

Þessi er einstök og verður líklega ekki endurtekin 🥰

Address

Akureyri
600

Telephone

8966814

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Klakabönd - Gluggaskraut posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Klakabönd - Gluggaskraut:

Share