Mistra

Mistra Falleg hönnun, hlý stemning og vönduð smáatriði. Mistra sameinar það sem gerir heimilið notalegt og lífið aðeins fallegra.

18/09/2026
Betri svefn, betra líf 🌙 Dagsmejan var stofnað af Catarina og Andreas út frá einfaldri hugsjón um að bæta líf fólks með ...
18/09/2026

Betri svefn, betra líf 🌙

Dagsmejan var stofnað af Catarina og Andreas út frá einfaldri hugsjón um að bæta líf fólks með betri svefni. Eftir góða nótt vöknum við endurnærð, með skýrari hugsun og meiri orku til að takast á við daginn.

Náttfötin frá Dagsmejan eru hönnuð til að styðja við náttúrulegan svefn líkama og huga. Þau eru einstaklega mjúk og gerð út frá rannsóknum á hitastjórnun og þægindum í svefni, þannig að líkaminn haldi réttu hitastigi alla nóttina. Útkoman er dýpri, rólegri og endurnærandi svefn.

Allar vörur Dagsmejan eru unnar úr náttúrulegum og endingargóðum efnum og framleiddar í Evrópu.

✨ Kynntu þér Dagsmejan á www.mistra.is

Monbento Snacky nestisbox fyrir börn á ferðinni Snacky nestisboxið frá Monbento heldur nestinu fersku og öruggu, hvort s...
15/09/2026

Monbento Snacky nestisbox fyrir börn á ferðinni

Snacky nestisboxið frá Monbento heldur nestinu fersku og öruggu, hvort sem það fer með í skólann, ferðalagið eða út í ævintýri dagsins. Það rúmar samloku, ávexti eða snarl og ver matinn vel í töskunni.

Undir lokinu er hólf fyrir hnífapör og smærri bita, svo auðvelt sé að hafa allt snyrtilegt og innan seilingar þegar nestistíminn rennur upp. Boxið er létt, þægilegt í notkun og hannað til að þola daglega notkun barna.

Á lokinu er spjald sem má sérsníða með nafni barnsins eða tákni sem gerir boxið persónulegt og auðþekkjanlegt. Snacky nestisboxið er traustur félagi í leik og námi.

✨ Kynntu þér Monbento línuna á www.mistra.is

Lítill vinur fyrir lítil hjörtu 🐰Miffy First Light frá Mr Maria færir mjúka birtu og notalega stemningu í barnaherbergið...
13/09/2026

Lítill vinur fyrir lítil hjörtu 🐰

Miffy First Light frá Mr Maria færir mjúka birtu og notalega stemningu í barnaherbergið. Lampinn er úr hágæða sílikoni og er með LED ljósi sem hitnar ekki við snertingu, örugg og hlý lausn fyrir litlar hendur.

Hann er þráðlaus og auðvelt að taka hann með hvert sem er, hvort sem það er kvöldlestur, ferðalag eða róandi kvöldrútína. Með sínum vinalega svip og milda ljóma færir Miffy bæði öryggi og hlýju inn í herbergið og fylgir barninu frá háttatíma til fallegra drauma.

Miffy First Light kom fyrst á markað árið 2018 og hefur síðan orðið hluti af háttatímavenjum margra barna. Upphaflega var lampinn hugsaður fyrir fyrstu mánuðina þegar rólegt ljós og næturgjafir skipta máli, en með árunum hefur hann fylgt börnum áfram og orðið traustur félagi sem þau segja góða nótt áður en þau sofna.

✨ Kynntu þér Mr Maria á www.mistra.is

Handgerð hönnun með karakter 🕯️ CandleHand hefur vakið athygli um allan heim fyrir einstök kerti sem sameina húmor, sköp...
11/09/2026

Handgerð hönnun með karakter 🕯️

CandleHand hefur vakið athygli um allan heim fyrir einstök kerti sem sameina húmor, sköpun og hönnun. Merkið var stofnað árið 2012 af hönnuðinum Justinas, sem eyddi árum í að fullkomna kertið sem lítur út eins og raunveruleg hendi – svo nákvæmt að aðeins liturinn greinir það frá húðinni.

Hvert kerti er handgert í Litháen af mikilli natni og ástríðu fyrir handverki. Útkoman er einstakt listaverk úr vaxi sem fangar bæði augað og brosið.

CandleHand minnir á að hönnun má líka vera létt í anda – smá húmor getur gert heimilið hlýrra.

✨ Kynntu þér CandleHand á www.mistra.is

Listaverk sem heldur takti ⏱️Watch:Out veggklukkan frá Applicata, hönnuð af dönska arkitektinum Anne Boysen, er dæmi um ...
09/09/2026

Listaverk sem heldur takti ⏱️

Watch:Out veggklukkan frá Applicata, hönnuð af dönska arkitektinum Anne Boysen, er dæmi um hönnun þar sem einfaldleiki og fagurleiki mætast. Hreinar línur og hlýtt yfirbragð gera hana að klukku sem sameinar notagildi og fegurð í einni heild.

Klukkan er handunnin í Skandinavíu og ber með sér þá ró og jafnvægi sem einkenna norræna hönnun. Hvort sem hún prýðir eldhús, stofu eða skrifstofu, verður hún stílhrein viðbót sem gefur rýminu karakter og yfirvegun.

Applicata hefur frá árinu 2005 skapað vörur sem endurspegla kjarnann í skandinavískri hönnun, einfaldleika, gæði og hlýju í hverju smáatriði.

✨ Kynntu þér Applicata á www.mistra.is

Monbento Positive vatnsbrúsi fyrir börn á ferðinni 💧 Positive vatnsbrúsinn frá Monbento er hannaður fyrir litla könnuði ...
07/09/2026

Monbento Positive vatnsbrúsi fyrir börn á ferðinni 💧

Positive vatnsbrúsinn frá Monbento er hannaður fyrir litla könnuði sem eru alltaf á ferðinni. Brúsinn er léttur, endingargóður og passar fullkomlega í skólatöskuna eða bakpokann.

Hann er úr hágæða efni sem þolir högg og heldur vatninu fersku allan daginn. Þægilegt grip og lok sem heldur vatninu örugglega inni gera hann fullkominn félaga í leik og lærdómi.

Brúsinn er endurnýtanlegur og hannaður til að endast lengi, umhverfisvænn kostur sem fylgir barninu í öll ævintýri dagsins.

✨ Kynntu þér Monbento línuna á www.mistra.is

Njóttu augnabliksins 🥂 Vínglas sem sameinar einfaldleika og fegurð. Létt, endingargott og óbrjótanlegt. Hannað fyrir þá ...
04/09/2026

Njóttu augnabliksins 🥂

Vínglas sem sameinar einfaldleika og fegurð. Létt, endingargott og óbrjótanlegt. Hannað fyrir þá sem vilja njóta án þess að hafa áhyggjur af brothættu gleri.

Govino sameinar hönnun og notagildi í sinni tærustu mynd. Glas sem lyftir stemningunni, hvort sem þú nýtur hvítvíns, kampavíns eða drykkjar sem þú elskar mest.

✨ Skoðaðu vöruna á www.mistra.is

Hönnun sem kveikir á töfrum eldsins 🔥 Höfats var stofnað árið 2015 af Thomas og Christian, tveimur vinum, hönnuðum og ve...
07/04/2026

Hönnun sem kveikir á töfrum eldsins 🔥

Höfats var stofnað árið 2015 af Thomas og Christian, tveimur vinum, hönnuðum og verkfræðingum sem deila ástríðu fyrir því að sameina list og tækni. Þeir vildu færa fólki aftur þá einföldu gleði að sitja saman við eldinn, njóta hlýjunnar, logans og augnabliksins.

Vörur Höfats sameina hagnýta hugsun og fallega hönnun. Eldstæðin þeirra skapa náttúrulegan miðpunkt þar sem fólk kemur saman, hlær, talar og nýtur þess að vera til.

Höfats stendur fyrir hönnun sem er jafn mannleg og hún er nákvæm – þar sem eldurinn fær að njóta sín og umbreytir hversdagsleikanum í minningar sem lifa.

✨ Kynntu þér Höfats á www.mistra.is

Blómstrandi einfaldleiki 🌸 Lily kertastjakinn frá Applicata, hannaður af Anders Nørgaard, er hluti af Blossom línunni þa...
03/04/2026

Blómstrandi einfaldleiki 🌸

Lily kertastjakinn frá Applicata, hannaður af Anders Nørgaard, er hluti af Blossom línunni þar sem náttúran sjálf veitir innblástur. Formið minnir á lilju og fangar þá mjúku fegurð sem einkennir skandinavíska hönnun – látlausa, hlýja og tímalausa.

Hvort sem hann stendur einn eða með fleiri stjökum úr sömu línu, skapar Lily rólegt og hlýlegt andrúmsloft. Hann færir birtu og jafnvægi inn á heimilið og minnir á hversu fallegur einfaldleikin getur verið.

Applicata hefur frá árinu 2005 skapað hönnun sem sameinar náttúru, handverk og kyrrð – hluti sem gefa rýminu sál og fegurð í hverjum degi.

✨ Kynntu þér Lily og fleiri vörur frá Applicata á www.mistra.is

Address

Dalsbraut 1
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 11:00 - 18:00
Tuesday 11:00 - 18:00
Wednesday 11:00 - 18:00
Thursday 11:00 - 18:00
Friday 11:00 - 18:00
Saturday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545530045

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mistra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Mistra:

Shortcuts

Share