Hafsteinn Handverksmaður

Hafsteinn Handverksmaður Handverkið hefur svo sannarlega blómstrað og má með sanni segja að sumar okkar vörur eru orðnar vel þekktar.
(1)

Hafsteinn | Handverksmaður
-----------------‐---------
Hugvit ~ Hönnun ~ Handverk
Hanna og handgeri fallega og persónulega muni úr viði, parketi, steini og ýmsu fleiru.
---‐----------------------‐
Frá hugmynd að fullunnu verki. 💚 Laufskógar Handverk er nýr angi sem vaxið hefur út frá greinum
Ljósbrár Steinasafns og handverks sem hefur verið starfrækt síðustu 4 árin en vegna ástandsins í samfélagi

nu þá ákváðum við fjölskyldan, síðasta haust, að pakka saman steinasafninu um sinn og einbeita okkur að handverkinu. Við hjálpum fólki við að hanna og framleiða sína eigin hluti sem og að láta okkar eigin hugmyndir verða að veruleika. Við gerum okkar allra besta í hvívetna og er okkar markmið að gleðja viðskiptavini með persónulegu viðmóti og verklagi. Með frumlegu hugviti tekst okkur ekki einungis að búa til fallega hluti heldur einnig hluti sem gefa af sér góðar minningar. Endilega dreifið boðskapnum sem víðast.

Ást og friður,
Hafsteinn og Sjöfn

10 ára handverks afmæli!! 🥳 OG nýtt handverk!! Nánari upplýsingar hér neðst! ⬇️Ég verð ævinlega þakklátur fyrir allan þa...
25/07/2026

10 ára handverks afmæli!! 🥳 OG nýtt handverk!! Nánari upplýsingar hér neðst! ⬇️

Ég verð ævinlega þakklátur fyrir allan þann stuðning og viðskiptin sem ég og fjölskylda mín höfum fengið öll þessi 10 árin. Þetta hefur verið ævintýri og ólgusjór en alltaf höfum við haldið ótrauð áfram!

Fyrst var það Ljósbrá Steinasafn og handverkstæði.💎
Svo varð til Laufskógar Handverk.🌳
Og nú eru breytingar í loftinu og gengur verkstæðið nú undir heitinu
Hafsteinn Handverksmaður. 💚

Öllu er breytingum háð og hefur verkstæðið breyst og flutt sig um set en alltaf þó staðsett í blómstrandi bænum Hveragerði.

Enn og aftur hjartans þakkir!
Handverks-kveðjur,
Hafsteinn

NÝJA HANDVERKIÐ!!
FJÖLSKYLDU SKRABBLIÐ!! 💟
Hver kannast ekki við gamla góða borðspilið Scrabble?

Raðaðu saman nöfnum fjölskyldunnar og ástvina. Smelltu því uppá vegg og dáðstu að fallegu einingunni sem fjölskyldan er.
Ég er búinn að útbúa alla stafi íslenska stafrófsins sem og enska þannig að hægt er að velja alla bókstafi. Einnig er ég búinn að uppfæra tölugildin miðað við nýjustu útreikninga. Öllum pöntunum fylgir svo sérstök hjarta-flís með samtölunni sem ég kalla Kærleikstöluna.
En svo varð ég að gera aðeins meira....
Ég útbjó þetta einfalda snjallforrit til þess að auðvelda ykkur samsetninguna, vista myndina og senda mér í skilaboðum sem pöntun. Slóðin á vef appið er hér ⬇️🤓

https://fjolskyldu-skrabblid.base44.app/

Afmæliskynningarverðin og stærðir eru sem hér segir

3,5cm - 350 kr./stafurinn
4,5cm - 450 kr./.....
5,5cm - 550 kr./.....
Allar flísar koma í fallegum gjafastrigapoka.🎁🎀💰

Hlakka til að heyra frá ykkur! 💚

25/07/2026

Address

Hveragerdi
810

Telephone

+3548473460

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hafsteinn Handverksmaður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hafsteinn Handverksmaður:

Shortcuts

Share