24/09/2026
Togo sófann hannaði hinn franski Michel Ducaroy 1973. Hann vildi leita leiða til að gera sófa sem væri án hefðbundinnar trégrindar, þannig að formið sjálft yrði til úr mismunandi lögum af svampi. Djúpu fellingarnar í áklæðinu eru bæði hluti af útlitinu og því hvernig sófinn mótast utan um líkamann. Hann var líka hannaður mjög lágur, í takt við afslappaðri setustíl sem varð vinsæll á áttunda áratugnum. Þessi þriggja sæta sófi er fyrsti hluti verkefnis sem telur einnig tveggja sæta sófa, tvö hornsæti og skammel, meira síðar af því 😊