17/07/2026
Við kláruðum sumarnámskeið 3 í dag 🩵🩷 yndislegur hópur af 8 stelpum 🥰
Við gerðum endalaust af skemmtilegtum hlutum, teiknuðum, máluðum með akríl, máluðum með vatnslitum, gerðum þakklætisblóm, föndruðum snigla og apa, föndruðum armbönd og puttaprjónuðum.
Börnin lærðu heilan helling af jógastöðum, fórum í jógaleiki, eins og að búa til okkar eigin jógastöðu, blöðruleikinn, jógastoppdans og fleiri. Enduðum svo dagana á jóga nidra sem börnin elskuðu.
Í dag, síðasta daginn var bangsadagur, mikið fjör og gaman og fullt af óvæntum glaðningum. Bangsinn fékk að draga jógaspjöld og gerði fullt af jógaæfingum.
Börnin voru virkilega glöð með námskeiðið og fengum við gott kveðju knús í lokin 🫶🫶
Sjáumst kannski næsta sumar🧘♀️🎨🧘♂️🤸