BK DECOR

BK DECOR Innnanhússstílisti | Interior Decorator HVAÐ GERIR INNANHÚSSSTÍLISTI? Innanhússstílisti aðstoðar við að fegra rými þegar ekki er þörf á skipulagsbreytingum.

Hann vinnur með núverandi skipulag og breytir uppröðun húsgagna og fylgihluta til að nýta rýmið sem best. Innanhússstílisti aðstoðar við litasamsetningu, húsgagnaval ásamt skrautmunum, efnisval, lýsingu, gardínuval o.fl. Það hefur einnig færst í aukanna að innanhússstílisti sjái um allt ferlið en þá fer hann og kaupir inn þau húsgögn og fylgihluti sem vantar í rýmið og sér um allt ferlið til enda.

Innanhússstílisti vinnur almennt ekki með verktökum né arkitektum þar sem byggingaframkvæmdum er almennt lokið þegar innanhússstílisti kemur að verkinu.

LESS IS MORE 🤎 Góð framsetning snýst ekki um magn. Það þarf ekki að fylla allt plássið fyrir vörur. Með því að velja fær...
13/08/2026

LESS IS MORE 🤎 Góð framsetning snýst ekki um magn.

Það þarf ekki að fylla allt plássið fyrir vörur. Með því að velja færri hluti, skapa andrými á milli þeirra og leyfa hverjum hlut að njóta sín, þá verður heildin mun sterkari.

Hér er eitt af verkefnum BK Decor fyrir skartgripa- og úraverslun.

Erum svo ánægð með þessa útkomu. Sérsmíðað sófaborð þar sem við völdum stein í Steinlausnir og fengum Sólóhúsgögn ehf. t...
11/08/2026

Erum svo ánægð með þessa útkomu. Sérsmíðað sófaborð þar sem við völdum stein í Steinlausnir og fengum Sólóhúsgögn ehf. til að smíða grindina fyrir okkur. Kemur svo ótrúlega vel út.

Að fara í húsgagnaverslun með skýrt plan í höndunum er lykillinn að góðri niðurstöðu.Þú verslar markvisst, örugg/ur í ák...
10/08/2026

Að fara í húsgagnaverslun með skýrt plan í höndunum er lykillinn að góðri niðurstöðu.
Þú verslar markvisst, örugg/ur í ákvörðunum og forðast dýr mistök.

Heildarlausn sem tryggir samræmi, fagurfræði og notagildi.

Sendu okkur skilaboð fyrir frekari upplýsingar.

Er ofninn hjá þér fyrir? Í þessu verkefni var ákveðið að sérsmíða gangaborð og fela ofninn. Bættum við fallegum spegli o...
27/07/2026

Er ofninn hjá þér fyrir?

Í þessu verkefni var ákveðið að sérsmíða gangaborð og fela ofninn. Bættum við fallegum spegli og örfáum skrautmunum til að fullkomna heildina.

Stundum þarf ekki nema auðveldar sérsniðnar lausnir sem gera gæfumuninn og láta rýmið líta betur út.

Áður en þú velur veggjalit í rými - Lestu þetta!⚪️ Hugsaðu fyrst um stemninguna sem þú vilt skapa. Dökkt eða ljóst? ⚪️ V...
16/07/2026

Áður en þú velur veggjalit í rými - Lestu þetta!

⚪️ Hugsaðu fyrst um stemninguna sem þú vilt skapa. Dökkt eða ljóst?

⚪️ Veldu lit sem passar við innréttingar, hurðir, gólfefni, húsgögn, gardínur og listaverk sem er/ verða í rýminu. Þetta er mjög mikilvægt, því þú vilt að liturinn bindi allt saman og myndi fallega heild.

⚪️ Taktu frekar fleiri litaprufur en færri.

⚪️ Málaðu prufur á vegg eða pappa og gefðu þér tíma til að skoða litinn í mismunandi birtu.

⚪️ Að lokum: Ef núverandi veggur er dökkur mæli ég heilshugar með að setja litaprufur á pappa í stað þess að mála beint á vegginn. Dökkur undirlitur hefur áhrif á hvernig þú upplifir nýja litinn.

Ef þér líkaði þessi ráð þá máttu endilega setja ❤️ við færsluna.

Fyrirtækjaþjónusta BK Decor Við sérhæfum okkur í stíliseringu og innanhússráðgjöf fyrir fyrirtæki – frá skipulagi, litav...
08/07/2026

Fyrirtækjaþjónusta BK Decor

Við sérhæfum okkur í stíliseringu og innanhússráðgjöf fyrir fyrirtæki – frá skipulagi, litavali, húsgagnavali o.fl.

Hafðu samband:
✉️ [email protected]

Að skapa fallega og persónulega stofu snýst um meira en að velja ný húsgögn. Ég hjálpa þér að velja liti, áferð og efni ...
30/06/2026

Að skapa fallega og persónulega stofu snýst um meira en að velja ný húsgögn.

Ég hjálpa þér að velja liti, áferð og efni sem mynda fallega heild og legg áherslu á að blanda saman nýjum og gömlum húsgögnum. Með því að nýta það sem þú átt fyrir verður rýmið bæði persónulegt, hlýlegt og tímalaust – heimili sem endurspeglar þig.

Falleg framsetning hjálpar vörum að njóta sín og skapar eftirminnilega upplifun fyrir viðskiptavini.Hér er eitt af verke...
19/06/2026

Falleg framsetning hjálpar vörum að njóta sín og skapar eftirminnilega upplifun fyrir viðskiptavini.

Hér er eitt af verkefnum BK Decor fyrir skartgripa- og úraverslun.

Hver er manneskjan á bakvið BK Decor?Ég heiti Begga Ku**er og hef síðan 2020 hjálpað fólki að fegra heimili sín og fyrir...
18/05/2026

Hver er manneskjan á bakvið BK Decor?

Ég heiti Begga Ku**er og hef síðan 2020 hjálpað fólki að fegra heimili sín og fyrirtæki.
Sérsvið mitt er rýmisgreining — staðsetning húsgagna og nýta hvern fermetra sem best. Ég elska líka allt sem tengist stíliseringu, litavali og því að skapa fallegt og hlýlegt rými sem fólki líður vel í ✨

En hver er ég utan vinnunnar?
Skrauthæna sem finnst gaman að hafa sig til.
Ég er gift og á tvö börn… og tvo naggrísi sem við gáfum börnunum í jólagjöf fyrir nokkrum árum - viðurkenni að ég hef alveg fengið betri hugmyndir 😄

Annars elska ég allt sem heitir ,,námskeið” – og veit ekki hvað ég hef ekki farið á, og búin að sanka að mér ýmsum réttindum, — allt frá minni námskeiðum yfir í skotvopnapróf og meirapróf á bíl og eftirvagn 🚛
Og ef þið hafið ekki tekið eftir því ennþá… þá er ég orðin golfsjúk ⛳️
- og á í ástar haturs samband við það sport 😉

Takk kærlega fyrir að fylgja BK Decor - Það þýðir meira en þið haldið 🫶

Og ef ykkur dettur einhver í hug sem væri til í smá innblástur. Þá megið þið endilega deila síðunni áfram.

Eitt af mínum uppáhalds verkefnum 🥰
07/05/2026

Eitt af mínum uppáhalds verkefnum 🥰

Address

Reykjavík

Telephone

+3546959513

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when BK DECOR posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to BK DECOR:

Shortcuts

Share