Grilldrottningin

Grilldrottningin Þarf alltaf að vera grill. Uhh JÁ 😎

24/09/2026

Ostafyllt pull-apart brauð 🧀🔥

Dásamlega mjúkar og loftkenndar bollur, fylltar með bráðnum osti og bakaðar saman í 28 cm carbonstálpönnu.

Deig

* 300 ml volg mjólk
* 8–9 g þurrger
* 1½ msk. sykur
* 1 egg
* 60 g brætt smjör
* 1½ tsk. salt
* 520–570 g hveiti
* 8 g Optimax V2 bakstursensím, má sleppa

Fylling

* 350–400 g rifinn ostur, ég notaði mozzarella & Maribo blöndu

Hvítlaukssmjör

* 50 g smjör
* 2 hvítlauksrif, pressuð
* örlítið salt
* parmesan eftir smekk

Aðferð

Blandið volgri mjólk, geri og sykri saman og látið standa í um 5 mínútur. Bætið eggi, bræddu smjöri og salti saman við.

Blandið Optimax saman við hveitið ef það er notað. Bætið hveitinu smám saman út í og hnoðið í 8–10 mínútur. Deigið á að vera mjúkt og aðeins örlítið klístrað – passið að setja ekki of mikið hveiti.

Breiðið yfir og látið hefast þar til deigið hefur um það bil tvöfaldast, ca. 45–60 mínútur.

Skiptið deiginu í 14 jafna bita. Fletjið hvern bita aðeins út, setjið vel af osti í miðjuna og lokið deiginu vandlega utan um ostinn. Mótið í bollu.

Smyrjið 28 cm carbonstálpönnu létt og raðið bollunum í pönnuna með smá bili á milli. Breiðið yfir og látið hefast aftur í 20–30 mínútur.

Bakið við 190°C yfir- og undirhita í ca. 22–27 mínútur, þar til bollurnar eru fallega gullinbrúnar. Ef kjarnhiti er mældur er gott að miða við um 93–95°C í brauðinu.

Bræðið smjörið og blandið hvítlauk, steinselju og örlitlu salti saman við. Penslið heitar bollurnar með hvítlaukssmjörinu um leið og þær koma úr ofninum og stráið parmesan yfir.

Berið fram heitar og rífið í sundur – osturinn sér um restina. 🧀🤤



💡 Ég bakaði þær í 28 cm Kockums carbonstálpönnu. Carbonstálpannan hentar ekki bara til steikingar heldur er hún líka frábær í bakstur.

20/09/2026

Oktoberfest með Brezel 🇩🇪🍺🥨
230 ml volgt vatn
12 gr þurrger
500 gr hveiti
22 gr súrduft(hvede-sur)
11 gr Bageenzymer
1 tsk sykur
2 tsk salt
60 gr mjúkt smjör
 Aðferð:
Gerið sett út í volgt vatnið og hrært saman, látið bíða í 10 mín
Þurrfefnin sett út í
Hrært saman og síðan mjúku smjörinu bætt við
Hnoða í sirka 10 - 15 mín þangað til deigið er mjúkt
Láta svo deigið hvíla í 30 mín
Skipta deginu í 12 jafna parta
Rúlla hverjum parti upp, ekki setja hveiti á borðið.
Hver lengja má ekki vera styttri en 50 cm
Búa til slaufur og setja á bökunarplötu.  Það kom mikið betur út að nota bökunarplötu með holum.  Pretzel-in urðu með skemmtilegri áferð og bragð betri. Geyma í ískáp í sirka klukkutíma.  Ekki breiða yfir.
Þau sem eru hægramegin á myndini voru bökuð á gataplötu en þau sem eru vinstramegin voru bökuð á venjulegri plötu með bökunarpappír.
Setja vatn í pott 8 bolla og láta suðuna koma upp.  Hella síðan 1/2 bolla af matarsóda út í vatnið.
Baðið pretzel í vatninu, ekki hafa það lengur en 10 sekúndur ofan í.
Skera aðeins í þær og strá salti yfir
Baka við 200 gráður í 15 - 20. mínútur

06/09/2026

Grillað fyrir golfhópinn. ⛳️🔥

05/09/2026

Hot Honey BBQ blómkálsvængir 🔥🥦

Stökkir að utan, mjúkir að innan og velt upp úr hot honey BBQ-sósu. Svo eru þeir bornir fram með heimagerðri gráðostasósu, gulrótum og sellerí.

Þetta er uppskrift sem ég geri aftur og aftur – hvort sem það er sem forréttur, snakk eða aðalrettur

👇 Uppskriftin er í fyrsta kommenti.

foodreels snakk

01/09/2026

Mjúk rif, góð reyking og klístruð whisky-BBQ sósa 🔥

Ég eldaði rifin rólega á óbeinum hita á Kamado Bono og notaði eplavið til að fá gott reykbragð. Síðan var þeim pakkað í álpappír með bjór, smjöri og púðusykri. Í lokin penslaði ég þau með heimagerðri BBQ-sósu með viskíi og lét hana karamelliserast á grillinu.

Útkoman varð nákvæmlega eins og ég vil hafa rifin mín — mjúk, safarík og með góðu reykbrsgði, sætu og sýru. 😍

whiskybbq lowandslow

28/08/2026

Ostafylltar heimagerðar pylsur á grillinu 🔥🌭

Mig langaði að prófa eitthvað aðeins öðruvísi og gerði pylsur úr hakki, kryddaði þær meðal annars með cumin og fyllti með osti.

Ég byrjaði á að grilla þær á óbeinum hita á Kamado Bono og kláraði svo yfir beinum hita.

Með þessu gerði ég kartöflumús, steiktan lauk og currywurst-sósu — og þetta varð algjört comfort food. 😍

Ég veit samt enn ekki alveg… má ég kalla þetta pylsur? 😂

Pylsurnar
500 gr hakk
9 gr salt
1 tsk svartur pipar
2 tsk cumin
1 tsk reykt paprika
1 tsk sætt paprikuduft
2 tsk laukduft
2 tsk hvítlauksduft
1 tsk korianderduft
1/2 tsk múskat
Smá vatn

Currywurst sósa

1,5 dl Tómatsósa
1,5 dl Passata sósa
1 msk hvítlauksduft
2 msk karry
1 tsk reykt paprikka
1 tsk cumin
1 msk Worcesterhire sósa
1 msk eplaedik
Smá cayenne pipar

Soðið saman og smakkað til.

23/08/2026

Black Angus chuckflap á Kamado Bono 🔥🥩

Þetta kjöt kom mér verulega á óvart. Fallega fitusprengt mikið bragð og fullkominn á grillið.

Ég grillaði kjötið á beinum hita á Kamado Bono (52 gráður og hvíla í 10 mínútur)og bar það fram með rauðvínssósu sem ég gerði með lauk, hvítlauk, portobello, timjan, stjörnuanís, rauðvíni og nautasoði — svo kalt smjör í lokin fyrir gljáann. 🤎

Miso gljáinn á sætu kartöflurnar er olivuolia, miso, síróp, hunang, pipar og timian.

Grill BBQ Steak

12/08/2026

🔥 Ég held að þetta séu bestu kjúklingavængir sem ég hef gert.

Stökk húð, safaríkt kjöt og gljái sem klikkar ekki. Þetta var líka í fyrsta skipti sem ég gerði þessa uppskrift á Kamado Bono og hún verður klárlega endurtekin.

🍗 Uppskriftin er komin í fyrsta komment.

👉 Ert þú Team BBQ eða Team Buffalo?

07/08/2026

Getur Kamado Bono bakað alvöru föstudagspizzu? 🍕🔥

Ég verð að viðurkenna að ég bjóst ekki við svona stökkum botni og svona loftmiklum kanti.

Þetta verður klárlega ekki síðasta pizzan sem fer á grillið. 😍

03/08/2026

🥩 Ég ákvað að prófa reverse sear á Kamado Bono… og þetta verður klárlega ekki síðasta skiptið. 🔥

Tomahawk-steikin fékk fyrst að eldast rólega við lágan hita áður en hún fór yfir glóðirnar fyrir loka skorpuna.

Útkoman? Djúp skorpa, safaríkt kjöt og fullkominn kjarnhiti. 🤤

👉 Hefur þú prófað reverse sear ?

Address

Gvendargeisli 44
Reykjavík
113

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grilldrottningin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Grilldrottningin:

Shortcuts

Share