01/11/2023
Það er spennandi ný vegferð að hefjast hjá mér sem sjálfstætt starfandi "giggari" í ERR Design við ráðgjöf jafnt sem hönnun. Eftir frábært ferðalag með FSRE - Framkvæmdasýslan Ríkiseignir - þar sem ég vann í dásamlegu teymi að geggjuðu verkefni við að hanna og koma á laggirnar fyrstu Deiglunni. Verkefnið var að útfæra góða aðstöðu í opnu vinnurými, með nægu næðisrými, fundaraðstöðu, matsal sem kaffihús og aðstöðu fyrir kynningar og starfsmannafundi, en á hæðinni starfa yfir 100 manns í 1250 fermetra húsnæði. Deigla er unnin út frá verkefnamiðuðu vinnuumhverfi - VMV - sem er ný útfærsla á vinnuaðstöðu hjá ríkinu þar sem tvær eða fleiri stofnanir deila húsnæði.
Ég brenn fyrir því að halda áfram að deila minni reynslu í uppsetningu á verkefnamiðuðu vinnuumhverfi - VMV - fyrir fyrirtæki sem hafa áhuga á því að fara í þær breytingar og hagræða rekstri en um leið búa til frábært vinnuumhverfi fyrir fólkið sitt með vellíðan að leiðarljósi.
Ég hef mikla reynslu í fasteignaþróun og hef unnið í mörg ár í samvinnu með fasteignafélögum við endurskipulagningu á þróun, hönnun og betri nýtingu á fermetrum á hinum ýmsu verkefnum eins og verslun og verslunarmiðstöðvum.
Ég hef komið að þróun og breytingu við upplifun á hótelum, upplifunarhönnun, markaðsmálum og samfélagsmiðlum. Einnig hef ég áhuga á að taka að mér stjórnarsetu í fyrirtækjum þar sem ég get látið gott af mér leiða og þar sem reynsla mín nýtist. Ég hef jafnframt mikin áhuga á að halda fyrirlestra um VMV og deila þannig þekkingu minni á því sviði.
Ég hlakka til að hefja nýtt ferðalag og er spennt yfir því sem framtíðin hefur uppá að bjóða. Nánari upplýsingar um mig eru á heimsíðu minni www.err.is og um að gera að senda mér línu á [email protected]
Af virðingu og vinsemd
Edda Rún