24/09/2026
Svansdagar í Fakó🦢🥳
AF HVERJU AÐ VELJA SVANSVOTTUN?
Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansvottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna.
Svansvottun er auðveld leið til að miðla umhverfisstarfi fyrirtækis og sendir neytendum skýr skilaboð um að fyrirtækið vinni markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í öllum lífsferli vörunnar. Svansmerkið er áreiðanleg vottun sem 93% Íslendinga þekkja.
Svanurinn - Norræna umhverfismerkið