24/09/2026
NÁMSKEIÐ Í INNANHÚSSHÖNNUN
Nýjar dagsetningar fyrir haustið og veturinn. Námskeið fyrir alla áhugasama sem og þá sem vilja ná meiri færni og öryggi í að vinna með umhverfi sitt.
•Um er að ræða nýtt námskeið þar sem ég fer yfir þætti sem mér finnst skipta grundvallarmáli í því að ná að skapa heildrænt yfirbragð, vinna með rými sem heild og að skapa jafnvægi og samhljóm.
•Meðal þess sem ég ræði eru litir, viður og samband viðartegunda, efnisnotkun og áferðir, skipulag og uppröðun, stærðir og hlutföll, lýsing og textíll.
•Ég fer ítarlega yfir þessi atriði og styðst við myndir á skjá, býð upp á léttar veitingar og kalla á spjall og spurningar.
Námskeiðið er frábær skemmtun fyrir hópa sem vilja taka sig saman. Fjöldi á námskeiði 6 manns.
Næstu dagsetningar:
•6. október, þriðjud., 18:15-21:00
•21. október, miðvikud., 18:15-21:00
•5. nóvember, fimmtud., 18:15-21:00
Ég held námskeiðið heima hjá mér í miðbæ Reykjavíkur.
Verð 30 þúsund krónur.
Skráning og frekari upplýsingar á [email protected] eða í DM á instagram.