Gerum daginn girnilegan er uppskriftavefur á vegum Innnes ehf sem er ein af stærstu matvöruheildsölum landsins. Þessi vefur er fyrst og fremst settur upp til að til að kynna vörurnar okkar og hvernig hægt er að nota þær í matargerð en matargerð er eitt af okkar helstu áhugamálum. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreyttar og áhugaverðar uppskriftir sem samt sem áður flestir geta farið eftir og henta
bæði hversdags og þegar eitthvað stendur til. Við viljum fá sem flesta í lið með okkur og höfum við verið í samstarfi við hina ýmsu kokka ásamt vinsælustu matarbloggara landsins sem gert hafa fyrir okkur frábærar uppskriftir sem er að finna í uppskriftabankanum okkar. Einnig búum við svo vel að hjá okkur starfa lista kokkar sem við munum einnig leita til. Markmið Gerum daginn girnilegan er setja inn nýjar og spennandi uppskriftir reglulega bæði á uppskriftarvefinn og á Facebook. Gerum daginn girnilegan leggur mikið upp úr því að deila með fylgjendum okkar uppskriftum í samræmi við árstíð og þema sem er í gangi hverju sinni, sem dæmi má nefna eru t.d. jólauppskriftir, grilluppskriftir og aðrar spennandi uppskriftir.