Íslenska Ullarvinnslan / Icelandic Wool Works

Íslenska Ullarvinnslan / Icelandic Wool Works Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Íslenska Ullarvinnslan / Icelandic Wool Works, Arts & Crafts Store, Hrísmýri 5, Selfoss.

31/07/2026
💙Vegna verslunarmannahelgarinnar verður LOKAÐ hjá okkur laugardaginn 1. ágúst! 🌷Opið á morgun 11:00-15:00 og svo á þriðj...
30/07/2026

💙Vegna verslunarmannahelgarinnar verður LOKAÐ hjá okkur laugardaginn 1. ágúst!

🌷Opið á morgun 11:00-15:00 og svo á þriðjudaginn! 🌷

28/07/2026

BJARNARRÓT
https://horpugull.is/products/bjarnarrot

Þessi litur minnir á blöð bjarnarrótar (Meum athamanticum). Bjarnarrót er gömul fjölær nytjajurt með fíngerð, fjaðurskipt og ilmandi blöð sem mynda mjúka, græna þúfu. Snemma sumars blómstrar hún smáum hvítum blómum í fíngerðum sveipum og er falleg bæði fyrir lauf og blóm.
-
Hver 50g dokka inniheldur einfaldan plötulopa (þingborgarlopa) sem er unninn úr sérvalinni fyrsta flokks íslenskri lambsull. Til að ná fram björtum og skínandi litum er hvítur lopi handlitaður með ediksýrulitun sem að gerir hverja dokku einstaka og ólíka annarri - allt eftir því hversu fylltur liturinn er.

Fleiri litir á horpugull.is

Nóg um að vera í dag í Íslensku Ullarvinnslunni - handspunnið garn frá Hörpugull,  myndlistarskólanemar að tæta og kemba...
28/07/2026

Nóg um að vera í dag í Íslensku Ullarvinnslunni - handspunnið garn frá Hörpugull, myndlistarskólanemar að tæta og kemba ull og þæfingakennsla hjá Textíl Elín ❤️

SALKA VALKA peysan er hönnuð af Maja Siska og uppskriftin fylgir í prjónapakkningu frá Hörpugull þar sem peysan er prjón...
23/07/2026

SALKA VALKA peysan er hönnuð af Maja Siska og uppskriftin fylgir í prjónapakkningu frá Hörpugull þar sem peysan er prjónuð úr einföldum lopa sem gerir hana létta og alveg passlega hlýja fyrir íslenskt sumar!

Peysuna er líka hægt að prjóna úr tvíbandi frá Dóru Band // Wool by Dóra

Fæst í Íslensku Ullarvinnslunni, Hrísmýri 5 á Selfossi - Opið þriðjudaga til laugardaga 11:00-15:00

Þrjár tegundir af fallegu FIS húfunum frá Dóru Band // Wool by Dóra fást í ýmsum litum í pakkningum úr einbandi - uppskr...
23/07/2026

Þrjár tegundir af fallegu FIS húfunum frá Dóru Band // Wool by Dóra fást í ýmsum litum í pakkningum úr einbandi - uppskrift fylgir með en líka hægt að kaupa hana staka á íslensku, ensku, þýsku og dönsku!

Hjördís  var að fá ný roð og er mætt í  að búa til hnappa í dag frá 11:00-15:00! Hægt að velja sér roð og fá hnappa á st...
23/07/2026

Hjördís var að fá ný roð og er mætt í að búa til hnappa í dag frá 11:00-15:00!
Hægt að velja sér roð og fá hnappa á staðnum!

Pinnavefstaður Textíl Elín  er skemmtileg leið til að vefa lyppur, kembur, lopa og band í til dæmis veggteppi! Hér má lá...
22/07/2026

Pinnavefstaður Textíl Elín er skemmtileg leið til að vefa lyppur, kembur, lopa og band í til dæmis veggteppi! Hér má láta sköpunarkraftinn ráða ríkjum og blanda saman allskyns litum og efni í einstakt listaverk!

Hægt að panta Pinnavefstað og kaupa hjá Íslensku Ullarvinnslunni - og auðvitað kembur, lyppur, lopa og band í allskyns litum!

Opið þriðjudaga - laugardaga 11:00 - 15:00 í Hrísmýri 5, Selfossi

Það er svo gaman að vinna úr ullarlyppunum og ullarkembunum frá  Textíl Elín - litadýrðina er illmögulegt að ná á mynd o...
21/07/2026

Það er svo gaman að vinna úr ullarlyppunum og ullarkembunum frá Textíl Elín - litadýrðina er illmögulegt að ná á mynd og sjón sannarlega sögu ríkari! Svo er hægt að gera svo margt með þeim - spinna, þæfa, pinnavefa svo dæmi séu tekin!

-Kíktu í litlu verslunina okkar til að bera úrvalið augum - við erum líka með þæfinganálar, allt í spuna (rokka og snældur) - svo er hægt að sérpanta bretti til að pinnavefa!

OPIÐ þriðjudaga - laugardaga 11:00-15:00

Íslenska Ullarvinnslan er ein af þeim sem standa að baki Ullarvikan á suðurlandi sem haldin er annað hvert ár á Suðurlan...
20/07/2026

Íslenska Ullarvinnslan er ein af þeim sem standa að baki Ullarvikan á suðurlandi sem haldin er annað hvert ár á Suðurlandi. Í ár verður Ullarvikan 27. september - 3. október og dagskráin hefur aldrei verið jafn fjölbreytt og spennandi!

Skráðu þig á póstlista inná ullarvikan.is - skráning hefst fljótlega á námskeið og viðburði!

Í verslun okkar í Hrísmýri 5, Selfossi er hægt að kaupa Ullarvikupokann og Skrautu armband sem bæði er til styrktar Ullarvikunni!

Address

Hrísmýri 5
Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íslenska Ullarvinnslan / Icelandic Wool Works posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share