Gallery Lilja

Gallery Lilja Jurtalitað einband og annað handverk búið til með ást og umhyggju

Hefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig jurtalitun fer fram?Ég ætla að sýna aðeins af því sem ég er að gera í ...
24/07/2026

Hefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig jurtalitun fer fram?
Ég ætla að sýna aðeins af því sem ég er að gera í jurtalituninni, áhöld, jurtir og efnin sem ég nota til að fá fram litina á bandinu mínu.
Ég verð á Tálknafjörsmarkaðinum á morgun laugardag milli kl. 14.00 og 17.00 með jurtalitaða bandið mitt og smásýnishorn af því hvað það er sem gefur litina í bandið mitt.
Hlakka til að sjá ykkur.

Allur búnaður og band komið í bílinn, tilbúið að fara á Markaðsdaga á Bolungarvík snemma í fyrramálið. Þar á meðal eru þ...
03/07/2026

Allur búnaður og band komið í bílinn, tilbúið að fara á Markaðsdaga á Bolungarvík snemma í fyrramálið. Þar á meðal eru þessar bleiku dásemdir sem leita að líklegum eiganda auk allra hinna litanna sem finna má í básnum mínum. Básinn verður merktur Gallery Lilja og vonandi verður hann auðfundinn.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest.

Á laugardaginn kemur 04.07.26. ætla ég að taka þátt í markaðsdeginum á Bolungarvík og vera þar með jurtalitaða einbandið...
29/06/2026

Á laugardaginn kemur 04.07.26. ætla ég að taka þátt í markaðsdeginum á Bolungarvík og vera þar með jurtalitaða einbandið mitt. Hlakka til að sjá ykkur sem flest þar milli kl. 13.00 og 17.00

Markaðstorgið sjálft er miðpunktur Markaðshelgarinnar! Þar má finna fjölda sölubása sem selja list, handverk og alþjóðlegan mat, eitthvað fyrir alla!

Að aflokinni Prjónagleði taka við annir sumarsins svo sem að þurrka litunarjurtirnar til notkunar í vetur og ein af þeim...
24/06/2026

Að aflokinni Prjónagleði taka við annir sumarsins svo sem að þurrka litunarjurtirnar til notkunar í vetur og ein af þeim allra skemmtilegustu er maríustakkurinn. Hann er í blóma núna og kraftmestur til litunar á þessum tíma. Það er því alveg kjörið að klippa hann og setja í þurrkun þegar veðrið er þurrt og hlýtt.
Svo er heilmikil vinna að hreinsa illgresið úr beðunum en það virðist alltaf vaxa betur en allt annað sem verið er að rækta :-)

Dásamleg Prjónagleði helgi að baki og ég er komin heim með yndislegar minningar og gleði í hjartanu yfir þeim frábæru mó...
08/06/2026

Dásamleg Prjónagleði helgi að baki og ég er komin heim með yndislegar minningar og gleði í hjartanu yfir þeim frábæru móttökum sem ég fékk við jurtalitaða bandinu mínu.
Takk öll sem komuð í básinn minn og spjölluðu og spurðu og klöppuðu bandinu mínu og keyptu líka.
Hlakka strax til næstu Prjónagleði því það var algjörlega til fyrirmyndar allt utanumhald og skipulag. Áfram Prjónagleði - Iceland Knit Fest

Prjónagleðin á Blönduósi er framundan, bara 11 dagar þangað til gleðin byrjar. Gallery Lilja verður að sjálfsögðu með og...
24/05/2026

Prjónagleðin á Blönduósi er framundan, bara 11 dagar þangað til gleðin byrjar. Gallery Lilja verður að sjálfsögðu með og vörurnar mínar eru auglýstar undir lógóinu Handverk frá Lilju. Hlakka til að sjá ykkur og njóta helgarinnar og garnveislunnar með ykkur öllum.
Sjáumst á Prjónagleði - Iceland Knit Fest

Spennandi dagur á morgun, laugardag. Ætla að vera með í vinnustofum í Verbúðinni á Patreksfirði þar sem ég verð með jurt...
22/05/2026

Spennandi dagur á morgun, laugardag. Ætla að vera með í vinnustofum í Verbúðinni á Patreksfirði þar sem ég verð með jurtalitaða einbandið mitt í Afdrepinu hjá Einari Skarphéðins.
Hlakka til að taka á móti ykkur sem flestum og sýna ykkur alla dásamlegu litina sem hægt er að fá úr jurtum.

Steig út fyrir þægindarammann á föstudaginn 1.maí þegar ég hélt fyrirlestur um jurtalitun og hvernig þessir dásamlegu li...
03/05/2026

Steig út fyrir þægindarammann á föstudaginn 1.maí þegar ég hélt fyrirlestur um jurtalitun og hvernig þessir dásamlegu litir verða til. Tókst þokkalega held ég og áheyrendur voru mjög áhugasamir um jurtalitunina.
Eftir fyrirlesturinn stillti ég upp í sölurýminu hjá Einari Skarphéðins á Patró og sýnist það vera prýðissöluaðstaða. Stefni á að vera þar á laugardaginn fyrir hvítasunnu þar sem þá er Skjaldborgarhátíðin á Patró og það væri mjög gaman að sýna gestunum sem koma vestur jurtalitað band.
Hlakka til og strax farin að undirbúa mig fyrir skemmtilegan dag.

Framundan er mikið fjör og mikið gaman. Ég verð á Prjónagleði - Iceland Knit Fest á Blönduósi 5-7.júní  í vor svo það er...
28/03/2026

Framundan er mikið fjör og mikið gaman. Ég verð á Prjónagleði - Iceland Knit Fest á Blönduósi 5-7.júní í vor svo það er eins gott að hafa nóg band tilbúið. Hér er sýnishorn af indigólituninni hjá mér á dögunum, blátt og grænt í þvotti og svo í þurrki.
Dásamlegir litir og vel heppnuð litun hjá mér að þessu sinni. Indigóið er alltaf svolítið vandmeð farið og getur brugðið til beggja vona með útkomuna. Núna tókst hún frábærlega :-)

Address

Tálknafjörður
Tálknafjörður
460

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gallery Lilja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share