VIGT

VIGT VIGT er íslenskt vörumerki sem hefur framleitt húsgögn og fylgihluti síðan árið 2013. Framleiðslan er upprunin á fjölskyldu verkstæði okkar í Grindavík.

VIGT er samstarf okkar, móður og þriggja dætra, sem með ólíka menntun og reynslu höfum sameinað krafta okkar við hönnun og framleiðslu ýmissa innanhússmuna. Sameiginlegur áhugi okkar kemur til eftir að hafa lifað og hrærst í heimi innréttinga- og mannvirkjagerðar en allar höfum við starfað hjá fjölskyldufyrirtækinu, Grindin ehf, sem hefur frá árinu 1979 byggt fjölda húsnæða og innréttað. Við framl

eiðslu á okkar vörum nýtum við meðal annars aðgengi og kunnáttu á tækjakosti tréðsmíðaverkstæðisins sem og það efni sem fellur til. VIGT er starfrækt í húsnæði sem á árum áður hýsti Hafnarvigt Grindavíkur og þaðan er nafnið dregið.

Bókastandar í miðju ferli, í þvingum. Unnir af nákvæmni og þolinmæði, áminning um að góðir hlutir krefjast tíma þar til ...
08/01/2026

Bókastandar í miðju ferli, í þvingum. Unnir af nákvæmni og þolinmæði, áminning um að góðir hlutir krefjast tíma þar til þeir taka á sig endanlega mynd.

Skapaðu listaverk úr því sem þú átt.Hillan verður rammi utan um minningar og augnablik og gerir um leið rýminu kleift að...
06/01/2026

Skapaðu listaverk úr því sem þú átt.
Hillan verður rammi utan um minningar og augnablik og gerir um leið rýminu kleift að þróast og breytast með tímanum án mikillar fyrirhafnar.

Við tökum á móti ykkur með hlýju og spjalli fram til jóla í Grindavík og EPAL, laugavegi.
19/12/2025

Við tökum á móti ykkur með hlýju og spjalli fram til jóla í Grindavík og EPAL, laugavegi.

Dagatalakertin eru komin
02/11/2025

Dagatalakertin eru komin

29/10/2025
Virkilega gaman að fá að taka þátt í kynningarátaki Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs sem endurspeglar breidd og gæði í...
17/10/2025

Virkilega gaman að fá að taka þátt í kynningarátaki Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs sem endurspeglar breidd og gæði íslenskrar hönnunar.

50 íslenskar hönnunarvörur munu birtast á skjám víðsvegar um höfuðborgarsvæðið og nágrenni dagana 16.–22. október. Markmiðið er að auka sýnileika, vitund og virðingu fyrir íslenskri hönnun í sinni fjölbreyttustu mynd.

Hafið augun opin og staldrið við þessar glæsilegu vörur.

Borð sem setur sterkan svip á rýmið hvort sem það stendur eitt eða tvö saman. Sófaborðið er úr náttúrusteininum traverti...
16/09/2025

Borð sem setur sterkan svip á rýmið hvort sem það stendur eitt eða tvö saman. Sófaborðið er úr náttúrusteininum travertine og olíuborinni eik. Neðri hillan býður upp á hagnýtt pláss fyrir bækur, körfur eða látlausa hluti.

Borðið fæst í tveimur stærðum, þriðja stærðin væntanleg.

21/08/2025

Það er okkur mikill heiður að Blue Lagoon Skincare hafi valið okkur til samstarfs – Takk fyrir traustið.

Við vonum að verkefnið endurspegli uppruna og elju vel gerðra hluta, með sameiginlegri sýn á sjálfbærni, hefð og handverk.

Fyrir Blue Lagoon Skincare 🤍
21/08/2025

Fyrir Blue Lagoon Skincare 🤍

Þegar við þurftum að yfirgefa eigur okkar og jafnvel reikna með að þær gætu horfið undir hraun, vöknuðu spurningar um væ...
12/03/2025

Þegar við þurftum að yfirgefa eigur okkar og jafnvel reikna með að þær gætu horfið undir hraun, vöknuðu spurningar um vægi hluta. Við vorum heil á húfi – var þá efnislegt gildi yfirhöfuð mikilvægt? Hvernig gætum við haldið áfram að skapa þegar við sjálfar vorum óvissar um mikilvægi efnislegra hluta?

Með tímanum fundum við hversu mikið hlutir skipta máli. Við þráðum að hafa þá hjá okkur – ekki bara vegna notagildis þeirra, heldur vegna þess að þeir gera heimilið hlýlegt og persónulegt. Þeir tengja okkur við minningar, upplifanir og það hver við erum.

Það var góð tilfinning að finna tilganginn og ástríðuna á ný. Við höldum áfram að gera það sem við elskum – að hanna og skapa húsgögn og fylgihluti sem veita heimilum hlýju og karakter.

Jólin og aðdragandi jóla er sérstakur tími fyrir okkur öll. Tími þar sem við gerum okkur dagamun með fjölskyldu og vinum...
03/12/2024

Jólin og aðdragandi jóla er sérstakur tími fyrir okkur öll. Tími þar sem við gerum okkur dagamun með fjölskyldu og vinum. Tími hefða og minninga. Höldum í gamlar hefðir, sköpum nýjar. Minnumst og búum til minningar. Jólin eru sköpun, við erum á einn eða annan hátt að skapa ævintýri og upplifun. Það er mikilvægt að ætla sér ekki um of í undirbúningi til þess að njóta þessa tíma.

Hér má sjá hugmyndir að jólaborði sem hægt er að skapa á fyrirhafnalítinn hátt. Kertaljós og silkigreni. Borðbúnaðar. Tauservéttur og bréfservéttur. Pakkar á borðum, matur og mandarínur.

Gleðilega aðventu.

Hilla.Gegnheill viður. Brúnbæsuð eða svört. Fæst í stærðum 120cm og 160cm.
23/10/2024

Hilla.

Gegnheill viður. Brúnbæsuð eða svört.
Fæst í stærðum 120cm og 160cm.

Address


Opening Hours

Thursday 13:00 - 17:00
Friday 13:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 15:00

Telephone

+3544268074

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VIGT posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to VIGT:

  • Want your business to be the top-listed Interior Service?

Share